Rósroði

Húðsjúkdómar

Hvaða lyf eru helst notuð við rósroða? Er eitthvað sambærilegt lyf við Mirvaso eða eru það aðalega rakakrem og svo sýklalyf?

 

Það er ýmislegt sem hægt er að gera við rosacea en meðferð getur verið misjöfn. Mirvaso er ætlað við rósroða og einnig ýmis sýklalyf eins og þú nefnir, einnig hefur Elidel krem verið notað og isostretinoin til inntöku (Decutan). Svo er einnig hægt að beita húðmeðferð eins og laser.