Lyf

Lyfjainntaka

Má taka inn samtímis: Presmin Combo, Celebra og Concerta?

Milliverkun þekkist á milli Presmin Combo og Celebra. Celebra getur dregið úr virkni Presmin Combo ásamt því að samtímis notkun þessara lyfja getur aukið álag á nýrun. Það er þó ekki endilega bannað að taka þessi lyf samtímis, það gæti þurft að aðlaga skammtastærðir og fylgjast vel með. Ef að sami læknir ávísar ekki báðum lyfjum þarf hann að vita af hinu lyfinu og getur þá gert ráðstafanir.

Einnig er hugsanlegt að Concerta minnki áhrif blóðþrýstingslækkandi lyfja svo sem Presmin Combo. Sama gildir þó þar, læknirinn sem ávísar þarf að vita af annarri lyfjatöku og tekur þá tillit til þess.