Sveppakrem

Kvensjúkdómar Sveppasýking

Ég keypti áðan í Lyfju Pevaryl kremið við sveppasýkingu, en sá svo þegar ég kom heim að konan hefur látið mig fá Pevaryl 1% til meðferðar við fótsveppum. Má nota það allastaðar eða er þetta eingöngu við fótsveppum ?

 

Það má nota þetta krem allstaðar, þ.e. einnig á sveppasýkingu í kynfærum þó svo það standi á þessu að það sé við fótsveppum. Þetta er sama kremið og er selt í pakkningu með pevaryl stílunum en er ekki til sem krem eitt og sér nema svona. Svo þér er óhætt að nota þetta.