Varaþurrkur

Húðvandamál

Hvað er best við varaþurrk í sól? Varirnar bólgna í sól. 

Ég mundi prófa að kaupa varasalva með sólarvörn. Ég mundi telja að það gæti hjálpað þér ef sólin er að valda þessum vandamálum. Þú getur heimsótt næsta apótek Lyfju og fengið aðstoð með að finna varasalva sem inniheldur góða sólarvörn.