Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Steinefni og snefilefni > Greinar > Flúor
Flúor
Flúor er steinefni sem finnst víða í náttúrunni. Flúor er í öllum vefjum líkamans, mest þó í tönnum og beinum.

Heiti Flúor Fluoride

Uppspretta Plöntur og vatn. Í dag eru flest tannkrem og munnskol flúorbætt.

Verkun - Nauðsynlegt fyrir myndun og viðhald tanna, flúor verndar tennur fyrir skemmdum. - Örvar myndun beina. - Hindrar virkni ýmissa ensímkerfa í líkamanum.

Notkun - verkun Til varnar tannskemmdum.

Ráðlagðir dagskammtar Manneldisráð Íslands hefur ekki gefið út ráðlagða dagskammta af flúor en eftirfarandi upplýsingar eru fengnar erlendis frá:

Ungabörn <1 árs 0,1-1,0 mg
Börn 1-10 ára 0,5-2,5 mg
Karlar 1,5-4,0 mg
Konur 1,5-4,0 mg
Ófrískar konur 1,5-4,0 mg
Konur með barn á brjósti 1,5-4,0 mg

Skortur Getur valdið tannskemmdum.

Eitrun Staðbundin og bráð eituráhrif flúors á magaslímhúð lýsa sér í ógleði, uppköstum, magaverkjum og niðurgangi. Óstaðbundin og bráð eituráhrif flúors eru fjölbreyttari og alvarlegri. Þar má nefna ertingu í taugakerfi, kalkskort, blóðsykurskort, lágþrýsting og öndunartruflanir. Hjartabilun, og í versta falli dauði, getur hlotist af öndunartruflunum.

Aukaverkanir Engar þekktar aðrar en eiturverkanir.

Milliverkanir Engar þekktar.

Frábendingar Engar þekktar.

Heimildir R. Marcus. Agents affecting calcification and bone turnover. Goodman & Gilman´s The pharmacological basis of therapeutics 9th edition. 1996 McGraw-Hill, New York. Bls.1538-1539.

http://www.wvda.org/nutrientl

Anna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar




  • Greinar
  • Spurt og svarað
Föstudagurinn 10. agúst 2007
- Almennt

Steinefni eru ólífræn efni og nauðsynleg mönnum og dýrum. Þau verða að berast líkamanum á einn eða annan hátt frá umhverfinu, eins og t.d. með fæðu. Steinefni gegna mikilvægu hlutverki í margþættri líkamsstarfsemi. Nefna mætti að þau eru byggingarefni beina og tanna, taka þátt í samdrætti vöðva, þýðingarmikil í blóðmy...

Meira
Fleiri greinar Meira