Levemir FlexPen

Sykursýkilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Detemírinsúlín

Markaðsleyfishafi: Novo Nordisk | Skráð: 1. desember, 2005

Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli. Það er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Sykursýki orsakast af skorti á insúlíni (tegund I) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II). Eina meðferðin við sykursýki af tegund I er að gefa insúlín en það getur líka gagnast í vissum tilfellum af tegund II. Insúlín er til í mörgum lyfjaformum sem eru mismunandi langvirk. Levemir inniheldur detemírinsúlín sem er breytt insúlín, mjög líkt mannainsúlíni. Detemírinsúlín hefur langvarandi og stöðuga blóðsykurslækkandi verkun og þannig næst betri stjórn á sykursýkinni. Levemir er notað ásamt stuttverkandi eða skjótvirku insúlíni.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf undir húð (áfylltur lyfjapenni).

Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundnir.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 2 klst.

Verkunartími:
Allt að 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum, varið ljósi og á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymsluþol lyfsins við stofuhita er 6 vikur. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Hafðu samband við lækni. Misjafnt er eftir einstaklingum hvaða viðbrögð eiga við.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Alls ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Insúlínmeðferð við insúlínháðri sykursýki er ævilöng.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu strax samband við lækni. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst. Fylgdu fyrirmælum læknis um viðbrögð við of lágum blóðsykri. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Æskilegt er að fylgjast vel með blóðsykri til þess að ná sem bestri stjórn á honum. Insúlín er notað ævilangt við insúlínháðri sykursýki.


Aukaverkanir

Blóðsykurfall er algengasta aukaverkun lyfsins. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Erting á stungustað          
Of lágur blóðsykur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Yfirlið eða krampar        

Milliverkanir

Vitað er að fjöldi lyfja hefur áhrif á efnaskipti glúkósu. Læknirinn verður því að taka tillit til hugsanlegra milliverkana og á hann ávallt að spyrja sjúklinga sína um öll lyf sem þeir nota. Náttúrulyfið ginkgo getur haft áhrif á virkni insúlíns.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Insúlín hefur ekki áhrif á fóstur en lítil stjórn á blóðsykri getur skaðað fóstrið. Fylgjast þarf nákvæmlega með blóðsykri meðan á meðgöngu stendur.

Brjóstagjöf:
Oft þarf að breyta skömmtum lyfsins á meðan móðir er með barn á brjósti.

Börn:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Skammtar eru einstaklingsbundnir.

Akstur:
Insúlín hefur ekki áhrif á aksturshæfni en ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.

Áfengi:
Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis. Það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota insúlín ættu því helst ekki að neyta áfengis.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni. Hægt er að sækja um undanþágu til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.