Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Algengir kvillar > Greinar > Hættu að reykja
Hættu að reykja
Fróðleikur Sá sem reykir verður að kljást við tvennt sem hann er orðinn háður. Annars vegar verður hann að vinna bug á nikótínfíkn sinni og hins vegar verður hann að venja sig af atferli eða hátterni sem hann hefur lært. Hið síðara getur reynst jafn torvelt og það að sætta sig við það að fá ekki lengur sitt nikótín. Í bæklingi sem Fræðsludeild Krabbameinsfélags Reykjavíkur gaf út og heitir "Nýtt líf - án tóbaks" (pdf skrá) getur þú fundið ýmis ráð sem geta reynst þér hjálpleg í baráttunni við að breyta hegðunarmunstrinu. Í tóbaksreyk eru skaðleg efni sem hafa áhrif á hjarta, lungu og æðakerfi. Flestir Íslendingar deyja af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Tíðni þessara sjúkdóma, m.a. kransæðastíflu, heilablóðfalls og æðaþrengsla er mun hærri meðal reykingamanna en þeirra sem ekki reykja.

Reykingar eru hættulegar öllum en ekki síst á meðgöngu. Frekari upplýsingar um þetta er að finna í bæklingum sem Fræðsludeild Krabbameinsfélags Reykjavíkur gaf út og heita "Börn og óbeinar reykingar" og "Foreldrar og reykingar". Þegar þú hættir að reykja hefst endurbótastarf líkamans strax.

Ávinningur sem er skjótur og augljós
  • Þú losnar við reykingahósta og óþægindi í hálsi.
  • Þú færð miklu síður kvef.
  • Bragð- og lyktarskyn verður miklu næmara.
  • Andardrátturinn verður miklu frísklegri, tennurnar hvítari og húðin hraustlegri.


Ávinningur til lengri tíma litið Þú færð miklu síður:
  • Hjarta- og æðasjúkdóma.
  • Krabbamein.
  • Langvinna berkjubólgu.
  • Lungnaþembu.
  • Magasár.


SPURNINGAR OG SVÖR

Hvers vegna er svo erfitt að hætta?
Tóbakið er fíkniefni sem veldur ávana. Nikótín hefur sams konar róandi áhrif og til dæmis morfín og kókaín. Af þeim sökum finnur fólk oft fyrir umtalsverðum óþægindum þegar það hættir að reykja. Þú skalt gera ráð fyrir því að fyrstu 3-4 dagarnir verði erfiðastir og að það versta verði liðið hjá eftir tvær til þrjár vikur.
  • Þú getur búist við að þyngjast.
  • Þú getur fundið fyrir einbeitingarleysi.
  • Þú getur fengið höfuðverk og fundið fyrir svima.
  • Þú getur fundið fyrir óróleika og pirringi.
  • Þú getur átt erfitt með að sofna og sefur órólega.


RÁÐ SEM HJÁLPA ÞÉR AÐ HÆTTA


  • Taktu ákvörðun um tímasetningu þegar reykingum skal hætt.
  • Láttu fjölskyldu, vini og starfsfélaga vita af þeirri ákvörðun þinni að hætta að reykja og leitaðu eftir stuðningi þeirra.
  • Það getur hjálpað að vera í hópi reykingamanna sem hætta í sameiningu.
  • Þú getur prófað nikótínlyf til að minnka fráhvarfseinkennin.
Komdu þér upp nýjum venjum
 

  • Breyttu um daglegar venjur. Gerðu t.d. morgunverkin í annarri röð en áður og sestu í annað sæti við borðið en þú áttir vana til.
  • Fjarlægðu allt sem minnir þig á reykingar.
  • Gerðu áætlun um hvernig þú ætlar að verja frístundunum.
  • Veldu þér störf sem gera þér illmögulegt að koma reykingum við, til dæmis að synda, sauma eða þvo upp.
  • Sneiddu hjá reykingafólki og stöðum þar sem er reykt.
  • Forðastu að lenda í kringumstæðum sem espa upp löngun til að reykja.
  • Lærðu slökun. Útvegaðu þér hljóðbönd með slökunaræfingum.


Eru til lyf án lyfseðils? Í Lyfju og í Apótekinu fást lyf sem gefa frá sér nikótín og geta dregið úr fráhvarfseinkennum. Nicorette fæst sem tyggjó, plástur, tungurótartöflur, innsogslyf og nefúðalyf og Nicotinell fæst sem tyggjó, plástur og munnsogstöflur. Lyfin eru til í mismunandi styrkleikum og fer þörfin eftir hversu mikið hver og einn hefur reykt. Fáðu ráðleggingar um val á nikótínlyfjum hjá lyfjafræðingi eða afgreiðslufólki Lyfju og Apóteksins.


GAGNLEGIR TENGLAR

Ráðgjöf í reykbindindi - 800 6030
Lýðheilsustöð - Tóbak og tóbaksvarnir
Landlæknir - Viltu hætta að reykja?

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Augnþurrkur

Það sem oft er kallað augnþreyta lýsir sér gjarnan með særindum, sviða og kláða og er oft á tíðum vegna augnþurrks. Helsta orsök þurrks í augum er skortur á táravökva. Tárakirtlarnir framleiða táravökva í sífellu og augnlokin miðla honum jafnt yfir allt yfirborð augans. Framleiðslan helst jafnan í hendur við uppgufun a...

Meira