Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég hef verið að taka Zoloft/Sertral s.l.2 ár 2x50mg á dag, nú eru 3 vikur síðan ég hætti á lyfjunum, ég tók mér mánuð í að \"trappa\" mig niður, síðan ég hætti á þeim hef ég upplifað miklu meiri geðsveiflur, er ekki svona tilfinningaflöt, suma daga er ég með sól í hjarta og líður miklu betur en allan þann tíma sem ég var á lyfjunum, mér finnst ég loksins vera á lífi en svo aðra daga verð ég mjög döpur og pirruð, kynlífið er aftur orðið eitthvað spennandi en það reyndi ég að forðast í lengstu lög síðustu ár,
Svar:
Sæl
Það er möguleiki að þetta tengist fráhvarfseinkennum lyfsins. Það að þrjár vikur séu liðnar þýðir að lyfið er hætt að virka. Þú greinilega þekkir vel aukaverkanir lyfsins enda þær sem þú telur upp klassískar. Þegar notuð eru lyf þarf alltaf að meta óþægindi vegna aukaverkana á móti kostum þess að vara á lyfinu. Valið var greinilega að vera á lyfinu enda þú búin að vara á því í rúmt ár. Það þýðri þó engan veginn að þú þurfir allaf að vera á því.
Þessum spurningum er þó mjög erfitt fyrir mig að svara enda þekki ég ekki nægjanlega vel sögu þína. Ef þetta er vegna fráhvarfseinkenna lyfsins þá ætti þetta að líða hjá mjög bráðlega. Það að þú hættir á lyfinu gæti þýtt að einkenni sjúkdómsins sem það hélt í skefjum komi aftur, vertu á varðbergi gagnvart því. Besta ráðið sem ég get sennilega gefið þér er að ráðfæra þig við þann lækni sem þekkir best sögu þína.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur