Spurning

Fræðsla og forvarnir > Hjarta- og æðakerfið > Spurt og svarað > Ginkgo Biloba og háþrýstingur
Ginkgo Biloba og háþrýstingur
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Mega sjúklingar með háþrýsting taka ginkgo biloba? Guðni

Svar:


Ginkgo virðist ekki hafa áhrif á blóðþrýsting og því ætti það ekki að vera skaðlegt þeim sem eru með háþrýsting.

Til fróðleiks: Ginkgo Biloba hefur verið notað við hand- og fótkulda þar sem það getur bætt blóðflæði til útlima. Rannsóknir benda einnig til þess að það geti hjálpað sjúklingum sem eru með skert blóðflæði til heila, og að það geti dregið úr astmaeinkennum astmasjúklinga.

Í þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið hafa hvorki sést alvarlegar aukaverkanir né milliverkanir við lyf. Það er þó ekki ráðlegt að taka Ginkgo samtímis blóðþynnandi lyfjum eins og warfaríni (Kóvar) eða asetýlsalisýlsýru.

Ekki er ráðlegt fyrir blæðara að taka Ginkgo þar sem það getur lengt storknunartíma blóðs. Ófrískar konur eða konur með barn á brjósti ættu ekki að nota Ginkgo þar sem áhrif þess á fóstur eða brjóstmylking eru ekki þekkt.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur