Spurning

Að taka inn lyf > Lyf á meðgöngu > Spurt og svarað > Þungun og glasafrjóvganir
Þungun og glasafrjóvganir
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hæ hæ. Ég er búin að reyna að koma af stað þungun í að verða ár en ekkert gerist. Geturu gefið mér einhver ráð til þess að reyna að koma þessu af stað. Takk, vigib

Svar:

Sæl vigib

Þetta er stór og viðkvæm spurning. Nú gefur þú ekki upp hvað þú hefur reynt hingað til eða hvaða ráðleggingar þú hefur fengið. Það liggur þó ljóst fyrir að fyrsta skrefið er að komast að því hvað veldur þessu. Líklega væri skynsamlegt að hafa samband við ykkar heimilislækni sem gæti þá vísað ykkur á viðeigandi sérfræðinga í framhaldinu.

Kvennadeild Landspítalans við Hringbraut starfrækir glasafrjóvgunardeild, þar sem boðið er upp á glasafrjóvgun, smásjárfrjóvgun og tæknisæðingu. Það þarf tilvísun frá lækni, sem í flestum tilfellum er heimilislæknir, kvensjúkdómalæknir eða þvagfæraskurðlæknir. Parið fer síðan í viðtal til læknis á deildinni þar sem staðan er metin. Ef glasafrjóvgun er viðeigandi er parið skráð á biðlista fyrir meðferð.

Ferlið fyrir glasafrjóvgun er í stuttu máli eftirfarandi. Byrjað er á að slökkva á hormónakerfi konunnar (með lyfinu Suprefact) sem stjórnar starfsemi eggjastokkanna. Ef blóðprufa sýnir að Suprefact hafi virkað er konunni gefið FSH-sprautur, en þetta lyf örvar eggjastokkana. Þegar viðunandi svörun hefur verið náð er konunni gefið hCG-sprauta til að ljúka eggþroskanum. Eggheimta er þá framkvæmd og sæði mannsins og eggjum konunnar blandað saman. Ef egg frjóvgast er fósturfærsla framkvæmd en þá er fósturvísum komið fyrir í legi konunnar. Þungunarpróf eru gerð á blóðsýni 2 vikum eftir eggheimtu. Að jafnaði eru líkur á þungun við hverja meðferð um einn á móti þremur.

Að lokum nokkrar athyglisverðar tölur:
Fimmta hvert par gengur í gegnum eitt eða fleiri tímabil ófrjósemi.
Meira en helmingur af pörum með ófrjósemisvandamál leita aðstoðar í heilbrigðiskerfinu.
Þrjú af hverjum fjórum pörum eignast barn eftir að hafa farið í eina frjósemisaðgerð eða fleiri.
Tæknifrjóvgunarmeðferð leiðir til getnaðar í þremur af hverjum fjórum tilfella miðað við að reynd sé ein meðferð eða fleiri.

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur