Spurning

Heilsa og vellíðan > Steinefni og snefilefni > Spurt og svarað > Hvað veldur svörtum hægðum?
Hvað veldur svörtum hægðum?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hvað veldur svörtum hægðum? Ég hef haft slíkt um tíma og finnst nóg um, er þetta þekkt? Jón

Svar:


Járn getur litað hægðir svartar ef teknir eru tiltölulega stórir skammtar (um 100 mg á dag - í venjulegum fjölvítamíntöflum eru um 10 mg). Ef þú tekur járntöflur daglega getur það verið skýringin, en þá er þetta skaðlaust.°

Hins vegar geta hægðir litast svartar ef það er blæðing í meltingarveginum. Ef þú hefur hægðatregðu eða kviðverki og hægðirnar eru svartar er ástæða til að leita læknis.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur