Spurning

Fræðsla og forvarnir > Húðsjúkdómar > Spurt og svarað > Er Benzoyl Peroxíð (panoxyl) óhætt fyrir þungaðar konur?
Er Benzoyl Peroxíð (panoxyl) óhætt fyrir þungaðar konur?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

H spurði:
Er í lagi fyrir þungaða konu að bera Benzoyl Peroxide (10%) á andlit sitt?

Svar:

Benzóýl peroxíð er alment talið óhætt fyrir þungaðar konur ef notað í réttum skömmtum samkvæmt kanadískri rannsókn sem ég rakst á. Lyfið er notað útvortis og frásogast lítið af því í gegnum húð. Þetta er þó ákvörðun sem þú ættir að taka í samráði við þinn lækni. Almennt eiga konur ekki að nota lyf á meðgöngu nema nauðsyn sé til þess.

Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur