Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hvað á að nota á exem í andlitinu?
Svar:
Sæl
það fer nú svolítið eftir því hve alvarlegt það er. Ráðlagt væri fyrir þig að ráðfæra þig við húðlækni. Það sem þú getur keypt í Lyfju er ætlað við vægum einkennum og það er t.d. vægasta sterakremið Mildison Lipid. Exemi má einnig stundum halda í skefjum í með góðu rakagefandi kremi.
kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur