Spurning

Fræðsla og forvarnir > Meltingarfærasjúkdómar > Spurt og svarað > Er Lómex áhrifaríkara en Asýran?
Er Lómex áhrifaríkara en Asýran?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Barði spurði:
Hversu áhrifaríkara er Lómex en t.d. Asýran? Læknar hið fyrrnefnda betur og fyrr magasár?

Svar:


Lómex virkar á annan hátt en Asýran. Lómex dregur meira úr framleiðslu magasýru en Asýran, og áhrif þess vara í lengri tíma eftir stakan skammt. Lómex er þannig virkara lyf, en það er jafnframt dýrara og ekki endilega alltaf þörf á því að nota það - í vægari tilfellum geta önnur lyf komið til greina.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur