Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Bb spurði:
Hvaða sýklalyf eru notuð gegn magasári (sárum í skeifugörn) eða magabólgum? Eru slík lyf notuð sem slík gegn sýkingum í öðrum líffærum?
Svar:
Helsti þáttur meðferðar gegn magasári eða sári í skeifugörn eru lyf sem draga úr magasýruframleiðslu. Sýking af völdum bakteríunnar Helicobacter pylorii getur valdið endurteknum magasárum, og því eru notuð sýklalyf með magalyfjunum þegar um slíka sýkingu er að ræða. Þau sýklalyf sem eru venjulega notuð í þessum tilfellum hafa einnig notagildi gegn öðrum sýkingum.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur