Spurning

Fræðsla og forvarnir > Algengir kvillar > Spurt og svarað > Sveppasýking í leggöngum
Sveppasýking í leggöngum
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég er með sveppasýkingu í leggöngum og er með mikinn kláða og óþægindi, sérstaklega við og eftir samfarir. Eru til einhver lausasölulyf sem geta hjálpað mér?

Svar:

Já, ef þú ert viss um að þú sért með sveppasýkingu í leggöngum þá getur þú t.d. keypt Pevaryl Depot í lausasölu. Þú getur keypt samsetta pakkningu sem samanstendur af einum stíl sem er stungið í fæðingaveg að kvöldi fyrir svefn og kremi sem er borið á 2-3svar á dag í nokkra daga. Ef maki þinn er einnig sýktur getur hann notað kremið til að bera á getnaðarliminn. Íslenskar leiðbeiningar fylgja með pakkningunni. Sem sagt, þú getur beðið um Pevaryl krem og stíl í lausasölu.

Frekari fróðleik er að finna á heimasíðu Lyfju hér

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur