Spurning

Fræðsla og forvarnir > Algengir kvillar > Spurt og svarað > Methýlrósanilín við munnangri
Methýlrósanilín við munnangri
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæl, ég fæ svo oft leiðindar munnangur, hvít sár í neðri munnvikum, oftast hjá einni augntönninni. Ég fór í apótek í Mosfellsbæ og fékk Methýlrósanilín 0,5% Fn. 10212. Ég bar þetta í sárið sem litaðist fjólublátt ásamt fyllingu í tönninni.

Er þetta örugglega lyf við munnangri? eða litarefni til að sjá bakteríur? Ég finn þetta efni hvergi á netinu né í neinum lyfjabókum.

Svar:

Sæll

Methýlrósanilín er lyf sem er notað við munnangri. Það er virkt gegn ákveðnum bakteríum og sveppum, sem geta valdið munnangri.

Áður en svokölluð ?hefðbundin? sýklalyf, sem við notum mest í dag, komu til sögunnar þá voru lífræn litarefni gjarnan notuð til að vinna á sýkingum. Notkun þessara litarefna hefur hins vegar minnkað mikið síðustu áratugina, en fáein hafa þó haldið velli og þar á meðal er Methýlrósanilín.

Sum lyf sem fást í apótekum eru framleidd í apótekum. Framleiðsla í apótekum hefur þó farið minnkandi og í dag eru einungis örfá apótek sem stunda einhverja framleiðslu. Þessi lyf eru dálítið sér á báti og upplýsingar um þau er ekki að finna í hefðbundnum lyfjabókum. Methýlrósanilín er eitt þessara lyfja.

Frekari fróðleik um blöðrur og sár í munni er að finna á heimasíðu Lyfju hér.

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur