Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Sæl. Ég fór nýlega til kvenskjúkdómalæknis vegna þess hve ég hafði miklar blæðingar. Læknirinn setti mig á getnaðarvarnarpilluna Yasmin í 3 mánuði til að minnka blæðingarnar, en ég hafði ekki verið á pillunni í langann tíma. Hvað líður langur tíma eftir að ég hætti að taka pilluna þar til ég get orðið ófrísk?
Svar:
Sæl
Það skiptir máli hvenær þú hættir að taka pillunna. En fræðilega séð þá getur þú orðið ófrísk ef þú gleymir að taka fleiri en eina pillu af Yasmin. Þú ert þó ekki að spurja um það. Ef þú hættir að taka getnaðarvarnar pillu þá áttu að geta orðið ófrísk við næsta egglos sem verður. Það gerist venjulega í miðjum tíðarhringnum. Pillan hættir strax að virka á nokkrum dögum. Þú getur s.s. orðið ófrísk í tíðarhring á 4. mánuði frá þeim tíma að þú byrjaðir að taka Yasmin. Ef þú hefur verið að taka Yasmin í 3 mánuði á réttan hátt og klárar skammtinn.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur.