Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Geðheilsa hjartasjúklings
Geðheilsa hjartasjúklings
Spurning barst þann 7.10.2008
Spurning:

Maðurinn minn er hjartasjúklingur, nokkuð stöðugur þó, en vill detta í hálfgert þunglyndi og verður þá ósköp gleðivana og ókátur á stundum - er til eitthvað til
að bæta það?

Svar:

Sennilega eru til úrræði fyrir manninn þinn. 

Það er grundvallaratriði að hann sjálfur átti sig á hvernig komið er og sé tilbúinn til að bæta líðan sína og jafnvel leita sér aðstoðar ef þarf. Kvíði og þunglyndi geta ýtt undir einkenni hjartasjúkdóma og hjartasjúkdómar valda oft kvíða og jafnvel þunglyndi. Þetta hangir allt saman eins og þú væntanlega veist og þess vegna er mikilvægt að maðurinn þinn sé meðhöndlaður heildrænt og hugað sé að andlegri heilsu ekki síður en líkamlegri. 

Góðar matarvenjur, nægileg hvíld og hreyfing geta gert heilmikið. Sérstaklega mæli ég með útivist sem hreyfingu, t.d. göngur eða hjólreiðar. Allt er betra en ekkert og 5-10 mínútna hringur í kringum nærliggjandi hús einu sinni á dag getur vel verið þess virði. Einnig er mikilvægt að huga að álagsþáttum og reyna að minnka þá eins og mögulegt er, t.d. vinnutengda og félagslega þætti o.fl.. 

Ef þú ert að hugsa um lyfjameðferð þá eru margir sem velja þann kostinn. Það eru mörg mismunandi lyf sem notuð eru og mismunandi hvað hentar hverjum og einum. Það fer bæði eftir líkamlegu ástandi og hvort viðkomandi tekur einhver önnur lyf að staðaldri. Lyfjameðferð er alltaf ákveðin í samráði við lækni og læknar eru almennt opnir fyrir umræðu um vanlíðan, kvíða eða þunglyndi. Ég hvet ykkur þess vegna til að taka þetta upp við lækninn hans. 

Lyf við þunglyndi lækna þó ekki allt ein og sér. Ég hef oft líkt lyfjameðferð við þunglyndi við það að fá gifs á fótbrot. Fóturinn grær hraðar og betur heldur en annars. Svona er það líka með þunglyndislyf. Fólki líður fljótt betur og er þá frekar í stakk búið til að horfast í augu við og ná tökum á því sem kann að hafa angrað viðkomandi.

Kveðja,
Jóna Valdís, lyfjafræðingur