Nasacort

Neflyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Tríamcínólón_

Markaðsleyfishafi: Opella Healthcare France SAS | Skráð: 1. nóvember, 1998

Tríamcínólón er svokallaður barksteri og er notaður við bólgusjúkdómum og ofnæmiseinkennum. Hann bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið og hefur almennt sömu áhrif og svokallaðir sykursterar sem myndast í nýrnaberki. Nasacort er notað fyrirbyggjandi og til meðferðar á nefslímubólgu af völdum ofnæmis.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Nefúði.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1-2 skammtar (55-110 míkrógrömm) í hvora nös einu sinni á dag. Börn 6-11 ára: 1 skammtur (55 míkrógrömm) í hvora nös einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Full verkun næst innan 3-4ra sólarhringa.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er venjulega aðeins notað þangað til einkenni hafa minnkað eða eru horfin. Farðu eftir fyrirmælum læknis.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Meiri hætta er á því að aukaverkanir lyfsins komi fram.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Erting og þurrkur í nefi, nefrennsli          
Höfuðverkur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.