Dulcolax

Hægðalyf | Verðflokkur: 0 | Heimilt er að selja takmarkað magn af lyfinu í lausasölu

Virkt innihaldsefni: Bisakódýl

Markaðsleyfishafi: Opella Healthcare France SAS

Dulcolax inniheldur bisakódýl sem hefur hægðalosandi áhrif. Það ertir þarmavegginn og örvar með því hreyfingar í þörmunum. Bisakódýl er notað til að tæma þarma fyrir skurðaðgerðir, fæðingar eða speglun. Það er einnig notað við tilfallandi hægðatregðu, sér í lagi hjá rúmliggjandi og eldra fólki. Ef bisakódýl er notað í langan tíma getur það skaðað eðlilegar hreyfingar í þörmunum og sjúklingur orðið háður notkun hægðalyfja.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Endaþarmsstílar.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 10 ára: 1 endaþarmsstíll (10 mg) á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Endaþarmsstílar verka eftir 15-30 mín., en það getur þó í einstaka tilvikum dregist í allt að 15-60 mín.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er ekki tekið að staðaldri.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er ekki tekið að staðaldri.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulegir ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið hentar ekki til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Magaverkir, niðurgangur          
Ógleði          

Milliverkanir

Samtímis notkun þvagræsilyfja, hjartaglýkósíða eða barkstera getur valdið auknu ójafnvægi í saltbúskap líkamans.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára nema samkvæmt læknisráði.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Ekki er æskilegt að aka bíl fyrr en áhrif lyfsins eru liðin hjá.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.