Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Vítamín > Greinar > Ráðlagðir dagskammtar
Ráðlagðir dagskammtar
Til að leiðbeina fólki hve mikið það á að taka inn af vítamínum og steinefnum hafa verið gefnir út ráðlagðir dagskammtar (skammstafað RDS), en það er magn nauðsynlegra næringarefna sem á að fullnægja næringarþörf þorra heilbrigðs fólks að mati Manneldisráðs Íslands.

Þarfir einstaklinga eru mismunandi og breytilegar, því ber ekki að túlka RDS sem algilda einstaklingsbundna þörf heldur að líta að það sem viðmiðunargildi. Skammtastærðir RDS eru líka miðaðar við heilbrigða einstaklinga en fjölmargir sjúkdómar og lyf geta hæglega breytt næringarþörf mannsins.

Ráðlagðir dagskammtar manneldisráðs

Anna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar
  • Greinar
  • Spurt og svarað
Föstudagurinn 10. agúst 2007
- Almennt

Vítamín eru skilgreind sem lífræn efni er líkaminn þarfnast í litlu mæli og verður að nálgast þau frá umhverfinu af því að vítamínin verða ekki til í líkamanum eða þá að myndun þeirra þar er ekki nægjanleg til að viðhalda heilsu manna. Aðaluppspretta vítamína er að finna í fæðunni með einni undantekningu; D-vítamín ver...

Meira