Lyf
Nasogen
1,00 mg/ml - 10 mlNasogen er notað við nefstíflum og miklu nefrennsli.
Xýlómetazólín, virka efni lyfsins, veldur því að æðar í nefslímhúðinni dragast saman. Við þetta minnka bólgur í nefslímhúðinni og dregið er úr slímmyndun. Lyfið er einnig notað við miðeyrnabólgu. Ef xýlómetazólín er notað lengur en 7 daga í senn eykst hætta á því að langvarandi bólga í nefslímhúð komi fram þegar notkun lyfsins er hætt.
Notkun:
- Fullorðnir og börn eldri en 10 ára: 1 úði (1 mg/ml) í hvora nös 1-3svar á dag.
- Börn 2-10 ára: 1 úði (0,5 mg/ml) í hvora nös 1-3svar á dag.
- Snýttu þér fyrir notkun og andaðu rólega inn um nefið um leið og lyfið er notað.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 038717
Verð1.040 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.