Lyf
Nasogen
0,50 mg/ml - 10 mlNasogen er notað við nefstíflum og miklu nefrennsli. Xýlómetazólín, virka efni lyfsins, veldur því að æðar í nefslímhúðinni dragast saman. Við þetta minnka bólgur í nefslímhúðinni og dregið er úr slímmyndun.
Lyfið er einnig notað við miðeyrnabólgu. Ef xýlómetazólín er notað lengur en 7 daga í senn eykst hætta á því að langvarandi bólga í nefslímhúð komi fram þegar notkun lyfsins er hætt.
Notkun:
- Fullorðnir og börn eldri en 10 ára: 1 úði (1 mg/ml) í hvora nös 1-3svar á dag.
- Börn 2-10 ára: 1 úði (0,5 mg/ml) í hvora nös 1-3svar á dag.
- Snýttu þér fyrir notkun og andaðu rólega inn um nefið um leið og lyfið er notað.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 485372
Verð1.070 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.