Lyf
Diklofenak Apofri
11,60 mg/g - 100 gDiklofenak Apofri hlaup inniheldur virka efnið díklófenak sem er bólgueyðandi efni með verkjastillandi verkun. Það dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda m.a. bólgumyndun.
Lyfið er notað staðbundið á húð við álags- og íþróttameiðslum eins og vöðva- og liðverkjum, tognunum og bólgum. Burðarefni hlaupsins hefur auk þess kælandi áhrif. Kostir þess að nota lyfið staðbundið á húð í stað þess að taka lyfið inn eru m.a. þeir að mun minni líkur eru á aukaverkunum sem og milliverkunum við önnur lyf.
Notkun:
- Borið á aum eða bólgin svæði 3-4 sinnum á dag. Ekki skal halda meðferðinni áfram lengur en í 14 daga án samráðs við lækni.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 408561
Verð2.457 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.