Solaray D-vítamín 30 mcg 1200iu 100 hylki
100 stkD-vítamín er nauðsynlegt bætiefni fyrir okkur Íslendinga, þar sem við náum ekki að vinna það úr sólarljósinu nema stuttan tíma á ári. D-vítamín er nauðsyn fyrir eðlilega beinþéttni, ónæmiskerfið, blóðsykurs og þyngdarstjórnun, taugakerfið, lundina, verkjastjórnun og margt fleira.
D-vítamín er stundum kallað sólarvítamín vegna þess að húðin framleiðir það þegar hún verður fyrir áhrifum útfjólublárra geisla sólarljóss. Auk þess fáum við D-vítamín úr fæðunni. D-vítamín er fituleysanlegt þ.e. líkaminn geymir umframmagn af D-vítamíni í lifrinni til betri tíma. Fólk á norðlægum slóðum þarfnast aukins D-vítamíns á veturna vegna þess hve stutt dagsbirtu nýtur þá við. D vítamín er nauðsynlegt fyrir eðlilegan beinvöxt og til að styrkja beinin, það stuðlar að betri upptöku á kalki, fosfór og fleiri steinefnum.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.
- Fylliefni: Ekstra jómfrúolífuolia
- Mjúk hylki kapsler: Gelatín (kálfur).
- Rakagefandi efni: Glycerol. Cholecalciferol frá lanolin.
Eitt hylki á dag.