Laseraðgerðir á augum

1920X1080 Augu 27
Jóhannes Kári
Jóhannes Kári Augnlæknir
4. mars 2025
Tengt efni
Augnheilsa

Jóhannes Kári augnlæknir fjallar um laseraðgerðir á augum í þessum áhugaverða fyrirlestri. Laseraðgerðir á augum hafa rutt sér til rúms á undanförnum áratugum og eru nú orðnar ein algengasta aðgerð sem framkvæmd er á mannslíkamanum.

Johannes 1920x1080

Í þessum aðgerðum er yfirborð hornhimnu augans breytt til að gera fólk óháð hjálpartækjum eins og snertilinsum og gleraugum. Aðgerðirnar eru framkvæmdar með lasertækjum sem annars vegar útbúa flipa á hornhimnuna og síðan er framkvæmd lasermeðferð sem gerir hornhimnuna kúptari, flatari eftir því sem við á til að viðkomandi sé ekki lengur háður hjálpartækjum til að sjá umhverfi sitt. Yfir 98% fólks fær sjón 6/6 eða betur og sama prósentutala er ánægð með árangur aðgerðarinnar og sjón sína.

Laseraðgerð er nú talin mun öruggari en snertilinsunotkun og er áhætta afar lítil.

Vörur fyrir augnheilsuna
Deila