Vöggugjöf Lyfju
Vöggugjöf Lyfju
Takk fyrir frábærar viðtökur á Vöggugjöfinni kæru foreldrar. Við erum í skýjunum! Því miður kláruðust allar Vöggugjafirnar. Má ekki bjóða þér að skrá netfangið þitt á póstlistann okkar og við látum þig vita um leið og við fáum fleiri Vöggugjafir? Gangi ykkur vel í nýja hlutverkinu

Vörur í Vöggugjöfinni
Í Vöggugjöfinni eru húðvörur með vottunina Hrein vara í Lyfju. Vara með vottunina Hrein vara í Lyfju, er vara sem þú getur treyst og við mælum með af heilum hug og eru án skaðlegra innihaldsefna fyrir líkamann og umhverfið. Una Emilsdóttir sérnámslæknir í umhverfislæknisfræði veitir vottunina.
Hafðu í huga...
- Vöggugjöfin er hugsuð fyrir verðandi foreldra og börn að þriggja mánaða aldri.
- Vöggugjöfin nýtist verðandi og nýbökuðum foreldrum best og er hugsuð fyrir foreldra en ekki aðstandendur.
- Til að sem flestir foreldrar og nýfædd börn geti notið Vöggugjafarinnar gerum við einungis ráð fyrir einni Vöggugjöf fyrir hvert barn.
- Við sérveljum gæðavörur í Vöggugjöfina, en þær gætu verið mismunandi milli mánaða/ára.
- Vöggugjöfin er sérvalin og því er ekki hægt að skila eða skipta einstaka vörum úr Vöggugjöfinni.
- Sækja þarf gjöfina innan 14 daga eftir að póstur berst um að pöntun sé tilbúin til afhendingar.
Ef einhverjar spurningar vakna, eða ef þú ert með ábendingu, sendu okkur þá tölvupóst á lyfja@lyfja.is eða hafðu samband á netspjalli Lyfju.



























