Augnheilsa

Stóru augnsjúkdómarnir þrír

1920X1080 22
Jóhannes Kári
Jóhannes Kári Augnlæknir
18. mars 2023
Tengt efni
Augnheilsa Sjúkdómar og kvillar

Jóhannes Kári augnlæknir fræðir um stóru augnsjúkdómana þrjá, forvarnir og mikilvægi þess að fara reglulega í augnskoðun.

Með aldrinum aukast líkur á augnsjúkdómum. Margir aldraðir sjá mjög vel en það eru aðallega þrír augnsjúkdómar sem sérstaklega þarf að vera á varðbergi fyrir – ekki síst þar sem hægt er að meðhöndla þá og koma í veg fyrir sjóntap ef gripið er inn í á réttum tímapunkti. Því þurfa einstaklingar yfir 60 ára að fara til augnlæknis á að minnsta kosti 3ja ára fresti og oftar ef þarf.

  1. Aldursbundin augnbotnahrörnun er sjúkdómur sem kemur upp í augnbotnum (sjónhimnu) eins og nafnið gefur til kynna. Hann skiptist í þurra hrörnun og vota hrörnun. Sú fyrrnefnda er miklu algengari en sú síðarnefnda er mun alvarlegri og veldur hraðari og meiri sjónversnun. Aðaleinkenni sjónversnunar í aldursbundinni augnbotnahrörnun er versnun sjónar í miðju sjónsviðs – hliðarsjón er óbreytt í sjúkdómnum og fólk verður aldrei alblint með þennan sjúkdóm. Oft er hægt að meðhöndla hann með augnvítamínum og stundum þarf að gefa lyf inn í augað.

  2. Annar augnsjúkdómurinn er gláka, sem veldur breytingum á hliðarsjón fyrst og fremst en minna í miðju sjónar fyrr en á lokastigum sjúkdómsins. Gláka getur valdið alblindu en sem betur fer hefur henni verið nánast útrýmt hér vegna góðrar meðferðar í formi augndropa, laseraðgerða og stundum skurðaðgerða sem eru í sífelldri framför. Gláka er mjög ættgeng og því þurfa þeir sem hafa sögu um slíkt í ættinni að fara reglubundið til augnlæknis. Öll meðferð við gláku beinist að því að lækka augnþrýsting þar sem sjúkdómurinn orsakast af því að þrýstingur inni í auganu skemmir sjóntaugina smám saman.

  3. Þriðji augnsjúkdómurinn er svo skýmyndun á augasteini. Nær allir þurfa að fara í slíka aðgerð einhvern tíma á ævinni ef þeim endist aldur til. Augasteinninn verður skýjaður með aldrinum og á einhverjum tímapunkti versnar sjónin að því marki að viðkomandi þarf að láta skipta um augastein. Slík aðgerð hefur þróast mjög á undanförnum áratugum og tekur aðgerðin nú aðeins 10 mínútur og þarf viðkomandi ekki að leggjast inn á sjúkrahús. Hún er orðin algengasta aðgerð hér á landi sem annars staðar og er mjög örugg skurðaðgerð.

Hugaðu að augnheilsunni. Hjá Lyfju færð þú fjölbreytta fræðslu, ráðgjöf, bætiefni, augnvörur, gleraugu og linsur.

Deila