Bólusetning fyrir forgangshópa í Lyfju nálægt þér

Bólusetning fyrir forgangshópa í Lyfju nálægt þér

Lyfjafr 1920X1080 2 (1)
Lyfja
Lyfja Apótek
19. október 2026

Bólusetningar í Lyfju nálægt þér

Við fögnum því að geta bætt þjónustu okkar enn frekar við Íslendinga um allt land, með það að markmiði að bæta lífsgæði og stuðla að betri heilsu. Lyfjafræðingar og hjúkrunarfræðingar Lyfju bjóða inflúensubólusetningar fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem tilheyra skilgreindum forgangshópum.  Krafa er frá sóttvarnarlækni að byrjað sé að bólusetja forgangshópa en aðrir hópar munu fylgja í kjölfarið.

Forgangshópar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu.

Athugið að barnshafandi konum er vísað í mæðravernd vegna inflúensubólusetningar.

Tímabókanir í bólusetningu

Bókanir í inflúensubólusetningu fara fram í Noona. Við mælum með að bóka tíma fyrirfram, en einnig er hægt að mæta án tímabókunar í Lyfju Lágmúla og Smáratorgi.

Apótek  
Lyfja Lágmúla Panta tíma
Lyfja Smáratorgi Panta tíma
Lyfja Akureyri Panta tíma
Lyfja Árbæ Panta tíma
Lyfja Borgarnesi Panta tíma
Lyfja Egilsstöðum Panta tíma
Lyfja Garðatorgi Panta tíma
Lyfja Granda Panta tíma
Lyfja Hólagarði Panta tíma
Lyfja Húsavík Panta tíma
Lyfja Neskaupstað Panta tíma
Lyfja Norðurhellu Panta tíma
Lyfja Reykjanesbæ Panta tíma
Lyfja Selfossi Panta tíma
Lyfja Setbergi Panta tíma
Lyfja Smáralind Panta tíma

Spurt og svarað

Deila