Neföndun bætir svefn, einbeitingu og frammistöðu í íþróttum, hjálpar til við að halda heilum og heilbrigðum tönnum og tannholdi, eykur líkur á heilbrigðum vexti andlitsbeina og stuðlar að beinum tönnum. Hrönn Róbertsdóttir, tannlæknir á Brosinu Heilsuklinik með Diplomate of the American Board of Dental Sleep Medicine, fræðir um mikilvægi neföndunar.
