Omega-3 og D3 vítamín - hver er munurinn?

Omega-3 og D3 vítamín - hver er munurinn?

1920X1080 Steinefni
Kolbrún Björnsdóttir
Kolbrún Björnsdóttir Grasalæknir
17. nóvember 2026

Þegar ég var að byrja sem grasalæknir  fyrir 33 árum þurfti ég varla að spyrja fólk hvort það tæki lýsi.  Það tóku allir lýsi (omega-3) og það fljótandi.  Lýsi hafði líka verið mikið í umræðunni á árunum 1988 til 2000. Á þessum árum og þar á undan höfðu komið út góðar rannsóknir sem bentu til mikillar gagnsemi omega-3 fyrir hjarta- og geðheilsu.  Síðan liðu árin og það dró sífellt úr þessari umræðu.  Svo mikið að í dag hafa margir gleymt omega-3. Þegar fólk kemur inn í Lyfju og spyr grasalækninn um ráð þá spyr ég fólk fyrst hvort það taki inn omega-3, lýsi, hörfræolíu eða aðrar omega-3 olíur. Mjög margir í dag taka ekki neitt af þessu og hafa ekki gert lengi eða eru bara að taka omega-3 hylki.  Hylkin eru svo annaðhvort of fá eða að olían sé farin að þrána inn í hylkjunum.   

Helstu einkenni hjá fólki sem tekur ekki omega-3 eru þurrkur í slímhúð og húð.  Það er svona auðveldasta leiðin til að sjá hvort fólk vanti omega-3.  Við þornum líka meira hér á landi, bæði út af veðrinu en einnig út af stressi. Það sem omega-3 gerir er að það smyr slímhimnuna og húðina og er væg vörn gegn þunglyndi, bólgustjórnun í líkamanum. Þá lækkar það þríglýseríð í blóði um 15 % og jafnar hormónakerfið og styrkir sjónhimnuna. Fólk svarar oft játandi þegar ég spyr það hvort það taki omega-3: „D3, ég er að taka D3, er það ekki omega-3?“ Það er sem sagt að rugla saman omega-3 við D3, sem er auðvitað alls ekki gott.  Hvort tveggja er mjög mikilvægt. En þessi ruglingur skapast af mikilli umræðu um D-vítamín.  Við höfum nefnilega náð ótrúlegum árangri í að fræða fólk um mikilvægi D-vítamíns.  En auka þarf umræðu um omega-3.    

Omega-3 er fjölómettuð fitusýra sem inniheldur virku efnin: 

  • DHA og EPA = Finnst í fiskiolíu, Krillolíu, þörungaolíu og örþörungaolíu.  
  • ALA = Finnst í hörfræolíu, chiafræjum, hörfræjum og valhnetum. 

Líkaminn breytir ALA að hluta til í EPA og DHA.   

Við viljum taka inn efni sem virka og líkaminn getur unnið úr.  Þess vegna vísa ég bara á efni sem ég hef reynslu af að virka. 

Hörfræolían frá Barleans er kaldpressuð og lífræn og hef ég mælt með henni í yfir 20 ár.  Ég er meðvituð um að upptakan er örlítið betri frá lýsi en hörfræolíu.  En ef lýsið er ekki kaldunnið þá vantar sum efni sem voru upphaflega í því.  Svo er þetta flókið, það er svo mikið af A-vítamínum í kaldunnu lýsi (Dropi) að ekki er gott að taka of stóran skammt af því þá minnkar innihald omega-3 sem við tökum og við þurfum meira en eina til tvær tsk. á dag.  Samkvæmt minni reynslu væri gott að miða notkunarskammtinn af Dropa og hörfræolíu við 80 kg manneskju. 

  • Hörfræolía 15 til 20 ml á dag eða 1-1 /2 msk.   
  • Dropi 10 ml á dag eða 2 tsk.  

D 3 - vítamín eykur upptöku á kalki og fosfór fyrir bein sem er nauðsynlegt fyrir ónæmiskerfið og hvernig líkaminn tjáir sig gegn sýkingum og annarri starfsemi. D-3 eru góð fyrir eðlilega vöðvastarfsemi og starfsemi taugakerfisins.  Svo af því að D- vítamín er hormón þá hefur það miklu víðtækari áhrif á líkamann.  Ein ný grein ( Sheila A. Doggell 2026) um möguleg áhrif D-vítamíns á MS (Multiple sclerosis) birtist í vor.  Þar kemur fram að skortur á D-3 vítamíni hafi áhrif, en það kemur ekki eins skýrt fram hver áhrif þess eru eitt og sér. 

Hafðu í huga

  • D-3 vítamín er EKKI omega-3 fitusýra.
  • Fyrir þá sem eiga í erfiðleikum að taka inn olíur þá virkar fyrir flesta að setja olíu í krukku með vatni og hrista mjög vel og drekka. 
  • Omega-3 er eins og smurolía fyrir öll líkamskerfin. 
  • D-vítamín verður að taka inn á veturna. 
  • Omega-3 verður að vera í kæli ef það inniheldur engin þráavarnaefni.   

D-vítamín

Deila