Hvernig á að gera harða endurræsingu á heyrnartækjum

Heyrnin

Hvernig á að gera harða endurræsingu á heyrnartækjum

PH Pic Audeoi P6 Swoosh Forlightbackground
Lyfja
Lyfja Apótek
13. mars 2026

Ef heyrnartæki virðast ekki vilja hlaðast (annað eða bæði) er gott að gera "hard reset“. Með því að neyða heyrnartækin til að endurræsa sig frá grunni hreinsast villan sem veldur því að tækin láta illa. Haltu neðri hluta veltihnapps stöðugt inni í a.m.k. 15 sekúndur.

Mikilvægt er að setja heyrnartækin í hleðsludokkuna til að sjá hvort endurræsingin virki. Það getur tekið örlitla stund fyrir tækin að byrja að hlaða sig eftir að þú setur þau í hleðsludokkuna eftir endurræsinguna.

Þegar þau eru byrjuð að hlaða sig þá gætir þú prufað tækin í eyrun. Vonandi er villan þá búin að hreinsa sig úr tækjunum og þau hlaða sig eðlilega.

Phoantaekidthit 1920x1080
Deila