Heyrnartæki

Heyrnartæki

Lyfja Heyrn Verslun Lagmuli 13
Lyfja
Lyfja Apótek
15. október 2026

Hin einstöku Phonak heyrnartæki með framúrskarandi hljóðgæðum fást hjá Lyfju Heyrn

Þú bókar tíma í ítarlega heyrnarmælingu og færð að prufa heyrnartæki í 2 vikur án viðbótarkostnaðar. Löggiltir heyrnarfræðingar og sérþjálfað starfsfólk leiða þig í gegnum allt ferlið. 

Við veitum faglega greiningu, persónulega ráðgjöf og fræðslu. Hjá okkur færðu lausnir sem eru sniðnar að þínum þörfum og lífsstíl. Við leggjum áherslu á trausta þjónustu og reglubundna eftirfylgni. Árleg heimsókn til heyrnarfræðings tryggir að heyrnartækin þín séu stillt eftir þeirri heyrn sem þú mælist með hverju sinni. 

Heyrnartæki fást í ólíkum gæða- og verðflokkum. Misjafnt er hvað hentar hverjum og einum. 
Taktu ákvörðun út frá ráðgjöf heyrnarfræðings og þeim kröfum sem þú gerir til þinnar heyrnar.

Lyfja Heyrn býður upp á Léttgreiðslur Símans Pay þannig að hægt er að dreifa greiðslum í allt að 36 mánuði.

Tímabókanir hjá Lyfju Heyrn

Phonak heyrnartæki

Deila