Heyrnartækjaleiga Lyfju Heyrnar
Heyrnartækjaleiga
Leigðu heyrnartæki í allt að 3 mánuði fyrir betri lífsgæði.
Bóka þarf tíma hjá Lyfju Heyrn í mælingu og mátun þegar leigja á heyrnartæki.Lyfja Heyrn býður viðskiptavinum að leigja heyrnartæki í allt að 3 mánuði í senn. Í boði eru þrjú mismunandi tæki og leiguverð:
| Heiti heyrnartækis | Verð á mánuði |
| Phonak Audeo Lumity | 12.900 kr. |
| Phonak Infinio Ultra | 19.900 kr. |
| Phonak Infinio Ultra Sphere | 24.900 kr. |
Tímabókanir hjá Lyfju Heyrn

Um Lyfju Heyrn
Lyfja Heyrn sérhæfir sig í að verja, mæla og bæta heyrn með framúrskarandi þjónustu löggildra heyrnarfræðinga og sérþjálfaðs starfsfólks. Kíktu við eða bókaðu tíma, við tökum vel á móti þér.
Hjá Lyfju Heyrn færð þú:
- Ítarlega heyrnarmælingu og getur skoðað vöruval Phonak heyrnatækja í sérhönnuðu heyrnarstúdíói
- Einfalda heyrnarmælingu sem segir til um það hvort þú þurfir að koma í ítarlegri heyrnarmælingu
- Leigu á heyrnartæki til skemmri tíma
- Ráðgjöf um heyrnartæki, fyrirbyggjandi vörur og lausnir
- Phonak heyrnartæki til prufu í kjölfar heyrnarmælingar
- Sérsmíðaða heyrnarvernd
- Roger aukabúnað fyrir Phonak heyrnartæki
Lyfja Heyrn er fyrsta verslun sinnar tegundar á Íslandi þar sem viðskiptavinir geta komið í einfalda og ítarlega heyrnarmælingu, skoðað og prófað heyrnartæki, stuðningsvörur heyrnartækja og fyrirbyggjandi lausnir fyrir heyrn með aðgengi að sérfræðiráðgjöf heyrnarfræðinga og sérþjálfaðs starfsfólks. Einnig er í boði að leigja heyrnartæki til skemmri tíma ef þörf er á slíku. Verslun okkar er öllum opin og við hvetjum þig til að kíkja við og skoða úrvalið eða fá faglega ráðgjöf. Við erum í Lágmúla 5 á jarðhæð, beint inn af bílastæði.
Okkar markmið er að breyta upplifun, þjónustu og vegferð viðskiptavina sem glíma við heyrnarskerðingu ásamt því að veita lausnir og faglega ráðgjöf á vörum sem vernda heyrn.
Við viljum þjónusta sérstaklega þá hópa sem þurfa á heyrnarvernd að halda í starfi og leik. Við bjóðum upp á algjörlega sérsniðnar heyrnarvarnir. Með því að skanna eyrað fáum við upp stafrænt mót af eyranu og smíðum eftir því sérsniðna eyrnartappa. Heyrnarverndin þín passar þér því fullkomlega.











