Phonak býður upp á tvenns konar heyrnarvarnir, annars vegar Universal eða almennar og svo sérsniðnar.
Almenn heyrnarvernd
Almennu heyrnarverndina er hægt að fá fyrir:
- Work
- Sleep
- Comfort
- Hunting
- Motorsport
- Music
Sérhver pakkning kemur með þremur stærðum af töppum: Small, Medium og Large, sem hentar mörgum þar sem hlustir eru ekki endilega jafnstórar báðum megin. Aðalatriðið er að velja rétta stærð af tappa og flytja þá síuna sem fylgir í þá stærð. Þegar þú hefur fundið út hvaða stærð af töppum þú þarft getur þú svo notað ál-hylkið sem fylgir undir tappana þína og tekið með þér. Sumir þurfa kannski ekki sömu stærðina í eyrun og það er bara í fínu lagi. Mikilvægt er að prófa sig áfram og átta sig á hvort stærðin henti þér.
Fyrir þá sem þurfa er hægt að sérpanta extra large stærð. Margir eiga erfitt með að nota "one-size-fits all" eyrnatappa og það er því frábært að þeir komi í þremur stærðum – fólk getur þá valið og fundið út hvað hentar.
Eitt lykilatriði við aukin gæði sem viðskiptavinur fær með Serenity Choice fram yfir aðra heyrnatappa sem við seljum er fullvissan um að tapparnir eru líklegri til að passa. Þá tryggir loftunin með síunum einnig betra eyrnaheilbrigði og minnkar líkur á sveppasýkingu eða öðrum fylgikvillum langtíma heyrnatappanotkunar.
Sérsniðin heyrnarvernd
- Music / tónlist: Kjörin fyrir þá sem vinna í tónlist eða sækja tónlistarviðburði.
- Work / vinna: Fyrir einstaklinga sem vinna í háværu umhverfi eða nota hávær verkfæri. Hentar vel í verksmiðjum, á byggingarsvæðum og þess háttar.
- Shooting & Hunting / skotveiðar: Dregur úr hávaðatoppum sem geta skapast við skotveiðar.
- Motorsports / mótorsport: Vernda fyrir véla- og vegahljóðum.
- Fly / flug: Aukin þægindi í flugi. Dempun á hávaða í farþegarými og kemur á betra jafnvægi á loftþrýstingi við flugtak/lendingu.
- Comfort / almenn þægindi: Hentar fyrir almenna notkun, t.d. opin skrifstofurými og þá sem vilja einbeita sér án þess að missa sambandið of mikið við umheiminn. Lækkar um 10 dB.
- Sleep / svefn: engin sía til að tryggja aukin þægindi í svefni. Sílikon-tappinn veitir lækkun um 24 dB. Hentar vel fyrir þá sem eiga maka sem hrýtur, og þá sem eiga erfitt með að sofna í nýjum aðstæðum og eru viðkvæmir fyrir mjög truflandi umhverfishljóðum.
- Swim / Sund: 5 dB lækkun, einstaklingur heyrir mun betur en með hefðbundnum sundtöppum sem loka fyrir loftun og möguleika hljóðs að komast að hlust.
Sérsmíðuð heyrnarvernd er sniðin að þörfum hvers og eins og með síum sem henta er auðvelt að stjórna hversu mikla dempun heyrnarverndin veitir.
Heyrnartap er óafturkræft. Við þurfum að vernda það sem við eigum
Sérsmíðuð heyrnarvernd veitir viðkomandi fullvissu um að eyrnatapparnir passi og til lengri tíma litið þá er betri ending á sérsmíðuðum töppum. Venjulegir eyrnatappar þola minna álag en tappar sem eru smíðaðir sérstaklega fyrir eyrun. Þessir venjulegu eyrnatappar verða fyrir meira togi og hnjaski þegar þeir eru settir í og teknir úr eyrum.
Þú tekur eftir umhverfi þínu og heyrir talað mál án þess að eiga á hættu að ofbjóða heyrninni með þeim tónum og hljóðum sem gætu skaðað heyrn þína. Síurnar tryggja að loftun eigi sér stað og að þú getir notað heyrnarverndina lengur án þess að upplifa hellutilfinningu.