Húðin

Góð sólarvörn minnkar líkur á húðkrabbameini

1920X1080 Hudin 32
Höfundur
Höfundur Lyfja
2. mars 2025
Tengt efni
Húðin

Aðgát skal höfð í nærveru sólar á vel við þegar að tíðni sortuæxlis í heiminum eykst um 3-7 % á hverju ári. Án vafa eru nokkrar ólíkar orsakir fyrir þessari aukningu en líklega má kenna óvarlegri sólarnotkun þar um. 

Það hefur lengi verið í tísku að vera sólbrúnn. Notkun ljósabekkja var mjög algeng hér á landi um síðustu aldamót en þá fór að bera á aukinni tíðni sortuæxlis, sérstaklega hjá ungum konum. Sem betur fer hefur sú tíðni lækkað aftur undanfarin tíu ár samfara minnkandi ljósabekkjanotkun. „Vísindalegar rannsóknir sýna ótvírætt að það þarf að fara varlega í sólinni og að notkun sólarvarna minnkar líkur á húðkrabbameini. Það hafa aftur á móti ýmsar getgátur skotið upp kollinum varðandi sólarvarnir síðastliðin ár. Það getur því verið mjög ruglandi og erfitt að átta sig á því hvað er rétt og hvað er rangt,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir. Hún fær margar spurningar um sólarvarnir frá sjúklingum sínum sem hún svarar hér.

Sólarvarnir fyrir andlit og líkama
Deila