Húðin

Hreyfing á breytingaskeiðinu

Aldis 1920X1080
Aldís Gunnarsdóttir
Aldís Gunnarsdóttir Næringarfræðingur og þjálfari
5. mars 2025
Tengt efni
Hreyfingin Kvenheilsa

Á breytingaskeiðinu þá minnkar estrógenið hjá konum sem getur valdið breytingum á líkamanum. Frá 30 ára aldri getur vöðvamassinn minnkað allt að 3-5% á hverjum áratug og eykst enn frekar við breytingaskeiðið ef ekkert er gert.

Tap á vöðvamassa þýðir minni styrkur og auknar líkur á föllum og beinbrotum. Aukinn vöðvamassi getur aukið lífsgæðin þegar kemur að styrk, líðan, svefni og fleira.

Aldis 1920X1080
Það sem ég myndi ráðleggja öllum konum er að lyfta lóðum lágmark tvisvar á viku og að stunda einhvers konar þolþjálfun einu sinni til tvisvar á viku, það geta verið langir göngutúrar eða þá hlaup/sprettir og hjólreiðar. Einnig er mikilvægt að hita sig vel upp fyrir æfingar og taka þá liðkunaræfingar í 4-6 mínútur og taka svo létta 4 mínútna göngu eða skokk á bretti eða að hjóla.
Vörur á breytingaskeiðinu
Deila