Elín Hafsteinsdóttir snyrtifræðingur sýnir okkur góða húðrútínu með húðvörum frá CeraVe og húðlækningavörum frá Bioderma og Pharmaceris, sem eru sérstaklega góðar fyrir unga húð.

Andlitshreinsirinn hentar mjög vel fyrir unga húð. Hann er sérstaklega góður til þess að hreinsa farða og yfirborðs óhreinindi. Hreinsirinn inniheldur ceramida sem styrkja húð og hýalúronsýru sem veitir góðan raka.
Serumið veitir mjög góðan raka sem endist allan daginn. Það inniheldur líka hýalúronsýru sem er eitt mikilvægasta rakagefandi efni í húðinni. Áferð húðarinnar verður mjúk eftir að hafa notað serumið, serumið hentar einnig vel undir farða
Dagkremið mýkir og verndar húðina gegn rakatapi. Einnig er SPF20 sólarvörn í kreminu sem er mjög mikilvægt fyrir unga húð þar sem sólin hefur slæm áhrif á húðina.