Húðin

Húðrútína | Viðkvæm húð

1920X1080 Myndir 04
Höfundur
Höfundur Lyfja
6. mars 2025
Tengt efni
Húðin

Elín Hafsteinsdóttir snyrtifræðingur sýnir okkur góða húðrútínu með húðlækningavörum frá La Roche-Posay, Bioderma og Eucerin, sem eru sérstaklega þróaðr fyrir viðkvæma húð.

Vidkvaemhud (1)
La Roche-Posay Toleriane Gentle Facial Cleanser

Andlitshreinsirinn hentar vel fyrir viðkvæma húð. Hann fjarlægir allar förðunarvörur og óhreinindi án þess að raska PH- gildi húðar. Hreinsirinn inniheldur Niacinamide og Ceramide sem styrkir húðina og bætir áferð.

Bioderma Sensibio Defensive Serum

Serumið vinnur að því að róa erta húð og draga úr roða. Það styrkir húðina ásamt því að veita henni raka sem endist lengi. Þetta serum er sérstaklega andoxandi þar sem það inniheldur E- vítamín.

Eucerin Ultra SENSITIVE Soothing Care #Normal

Kremið hentar allra viðkvæmustu húðgerðunum. Það inniheldur engin aukaefni og vinnur í því að róa húðina. Það veitir góðan og léttan raka sem hentar vel undir förðunarvörur. 

La Roche-Posay Anthelios Uvmune SPF50+

Anthelios Uvmune Ultra Light Cream SPF50+ er sólarvörn sem veitir mjög mikla vörn. Vörnin er fyrir andlit og augnsvæði, sérstaklega þróuð fyrir viðkvæma húð og augnsvæðið en hentar öllum húðgerðum. Sólarvörnin er án ilm- og ofnæmisvaldandi efna og SPF 50+. Sólarvörnin er sérstaklega vatns- og smitheld, ásamt því að erta ekki augun. Prófað undir eftirliti augnlækna.

Hugsum vel um stærsta líffærið okkar húðina, innan frá og utan, frá toppi til táar. Húðin gegnir mikilvægum sérhæfðum hlutverkum, hún ver okkur, heldur á okkur réttu hitastigi og skynjar umhverfið okkar.

Tengdar vörur
Deila