Hvað er rósroði?

1920X1080 Hudin 28
Dr. Jenna Huld Eysteinsdóttir
Dr. Jenna Huld Eysteinsdóttir Sérfræðingur í húðsjúkdómalækningum, Húðlæknastöðinni
3. mars 2025
Tengt efni
Húðin

Rósroði er mjög algengur bólgusjúkdómur í húð sem lýsir sér oftast með roða, bólum, graftrarbólum æðaslitum og stundum þrota í andliti. Einkenni sjúkdómsins ganga venjulega í köstum og stundum versna einkennin eftir hver kast. Það er því mikilvægt að hefja meðferð snemma til þess að stemma stigu við frekari þróun sjúkdómsins. Meðferðin er fjölþætt og beinist að bæði æða og bólguþættinum.

10 góð ráð til að meðhöndla rósroða áður en leitað er til læknis

Ef þessi ráð duga ekki til þá er kominn tími til að leita til annað hvort heimilislæknis eða húðlæknis.

Innihaldsefni sem fást án lyfseðils sem vert er að skoða fyrir rósroða

Innihaldsefni sem vert er að skoða til að fyrirbyggja öldrun húðarinnar ef rósroði er til staðar

Andoxunarefni
Minnka myndun sindurefna í húðinni en það eru efni sem hraða öldrun húðarinnar með niðurbroti á kollageni og skemmdum á húðfrumum

  • C- vítamín
    Minnkar sólskaða í húð vegna útfjólublárrar geislunar, örvar kollagen nýmyndun og lýsir húðina og vinnur þannig gegn litabreytingum í húðinni.
  • E-vítamín
    Fituleysanlegt andoxunarefni sem verndar frumuhimnur frá árásum sindurefnum
  • Ferrulic sýra

Andoxunarefni í plöntum og er unnið úr byggi. Hlutleysir sindurefni, drekkur í sig útfjólubláa geislun og er bólgueyðandi 

Hyaluronic sýra
Náttúruleg fjölsykra sem bindur raka kröftuglega í húðinni.

Niacinamid
Getur dregið úr fitumyndun í fitukirtlum og minnkað ásýnd opinna svitahola í húðinni.

ATH! ekki nota neinar virkar húðvörur ef mikil einkenni er til staðar.

Hugsum vel um stærsta líffærið okkar húðina, innan frá og utan, frá toppi til táar Húðin gegnir mikilvægum sérhæfðum hlutverkum, hún ver okkur, heldur á okkur réttu hitastigi og skynjar umhverfið okkar

Vörur sem hjálpa við rósroða
Deila