Náttúran innra með okkur

Teikningar 1920X1080 19
Birna G. Ásbjörnsdóttir
Birna G. Ásbjörnsdóttir Doktor í heilbrigðisvísindum frá Háskóla Íslands og er með M.Sc. gráðu í næringarlæknisfræði frá Surrey háskóla. Hún hefur hún lokið námi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum frá Oxfordháskóla.
1. mars 2025
Tengt efni
Meltingin

Birna ræðir um náttúruna innra með okkur og á hverju heilsan okkar byggir.

Birna Ásbjörnsdóttir er M.Sc. í næringarlæknisfræði, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum og margreyndur fyrirlesari og ráðgjafi um næringu og mataræði. 

Jörth var stofnuð með það markmið að hjálpa fólki að bæta heilsu sína og líðan með því að koma jafnvægi á þarmaflóruna. Það er okkar tilgangur. Við búum til hágæðabætiefni úr náttúrulegum hráefnum sem græða þig innan frá, eitt skref í einu. Því betri flóra hefur áhrif á svo miklu meira en bara meltinguna. Hún er grunnurinn að góðri heilsu, bæði líkamlegri og andlegri.

Birna Stroka 600x400

Þarmaflóran gegnir lykilhlutverki í mannslíkamanum. Hún samanstendur af örverum og framleiðir meðal annars orku, amínósýrur, B og K vítamín og stuttkeðju fitusýrur. Einnig hjálpar hún við upptöku á vítamínum og steinefnum, þjálfar ónæmiskerfið og eflir með því að keppa við sýkla um pláss. Þarmaflóran vegur um það bil jafn mikið og heilinn okkar og rannsóknir hafa leitt í ljós að þarmaflóran er jafn mikilvæg heilbrigðri líkamsstarfsemi og hvert annað líffæri.

Góðgerlar (e. probiotics) eru örverur sem hafa jákvæð áhrif á heilsu manna með því að bæta og efla þarmaflóruna. Þessar örverur efla heilsu okkar þegar þær eru teknar inn í hæfilegu magni samkvæmt skilgreiningu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar sameinuðu þjóðanna (FAO). Rannsóknum á góðgerlum hefur fjölgað gríðarlega undanfarna áratugi. Um síðustu aldamót voru nokkur hundruð ritrýndar greinar útgefnar um efnið en nú eru þær taldar í tugum þúsunda.

Gerlafæði (e. prebiotics) er skilgreint sem gerjanlegt innihaldsefni í ákveðnum fæðutegundum eða fæðubótarefnum. Það gagnast meltingarfærum okkar og eflir almenna heilsu því það stuðlar að ákveðnum breytingum á samsetningu og/eða virkni þarmaflórunnar. Gerlafæði samanstendur að mestu af fjölsykrum án sterkju og fásykrum, en við hvorki brjótum þessi efni niður né frásogum, nema að hluta til.

Þarma-heila ás (e. gut-brain axis) er hugtak sem notað er yfir samskipti þarma, heila og taugakerfis, en þessi líffæri eru tengd á marga mismunandi vegu, bæði líffræðilega og lífefnafræðilega. Við verðum vör við þessa tengingu þegar við fáum fiðring í magann af tilhlökkun eða hnút í magann þegar við kvíðum fyrir einhverju. Rannsóknir sýna að heilinn hefur áhrif á heilbrigði þarmanna og að þarmarnir ásamt þarmaflórunni geta sömuleiðis haft áhrif á heilbrigði heilans og geðheilsu okkar.

Vörur fyrir meltinguna
Deila