Móðir og barn

Hvað er gott að hafa með á fæðingadeildina?

1920X1080 Svefn 35
Höfundur
Höfundur Lyfja
11. mars 2020
Tengt efni
Móðir og barn

Það er mikilvægt að vera vel undirbúin og skipuleggja í góðum tíma hvað þarf að taka með fyrir móður og barn þegar haldið er af stað uppá fæðingardeild til að taka á móti nýjum fjölskyldumeðlimi.

Hér er tillaga að því hvað nauðsynlegt er að hafa með fyrir fæðinguna og dagana á eftir (ef þú þarft að dvelja lengur) fyrir móður, barn og föður áður en lagt er af stað uppá fæðingardeild. Gott er að pakka í tösku með góðum fyrirvara.

Fyrir fæðinguna

  • Orkustykki, ávexti, súkkulaði
  • Drykki; djús, vatn, gos
  • Tónlist
  • Myndavél
  • Heyrnatól
  • Varasalvi
  • Háreygjur
  • Sérstök föt til að fæða í (ef vill)

Fyrir móður

  • Dömubindi stór
  • Sokkar
  • Baðsloppur
  • Náttföt
  • Inniskór
  • Gjafabrjóstahaldari
  • Nærbuxur/neta
  • Brjóstakrem/olía
  • Brjóstainnlegg
  • Brjóstapumpa
  • Brjóstagjafapúða
  • Undirlag
  • Nuddolía
  • Hárband/hárteygja
  • Tannbursti/tannkrem
  • Svitarollon/sprey
  • Andlitshreinsikrem
  • Sjampó og hárnæring
  • Hárbursti
  • Dagkrem

Fyrir barnið

  • Bleiur  (t.d Pampers, Huggies eða taubleiur)
  • Undirlegg
  • Barnateppi
  • Svampar, blautþurrkur eða grisjur
  • Eyrnapinnar fyrir börn
  • Sótthreinsandi fyrir naflann
  • Bossakrem
  • Bómolía til að losa skán af kollinum og lúsakamb
  • Nefsuga
  • Snuð
  • Hitamælir
  • Naglaklippur
  • Skyggni til að setja á bílrúðu
  • Snuð fyrir nýbura og snuðkeðju sem festist á föt barnsins
  • Peli (ef ætlunin er að nota þannig. T.d Avent eða Medela sem er hannaður til að líkja eftir brjóstagjöf)
  • Baðhitamælir
  • Barnaolía
  • Windy
  • Föt á barnið (samfella, buxur/galli/peysa/bolur/sokkar/húfa/jakki
  • Bílstóll fyrir ungabörn
  • Poki í bílstól

Fyrir maka

  • Aukaföt
  • Tannbursti, hárbursti o.fl. (ef hann gistir)
  • Matur (taka t.d kælitösku með)
  • Tímarit, bók
  • Peningaveski
  • Sími og hleðslutæki
  • Myndvél og/eða videókamera
Vörur fyrir foreldra og barn
Deila