Prima D-vítamín sjálfspróf

D Vitamin
Höfundur
Höfundur Lyfja
29. júní 2024
Tengt efni
Næring og vellíðan

D-vítamín sjálfsprófið er ónæmismæling sem byggir á meginreglunni um samkeppnis- róteinabindingu, sem getur sýnt fram á óhóflegt, nægilegt, ófullnægjandi eða skort á D-vítamíni í blóði. Prófið er fyrir þá sem þreytast auðveldlega, fá lítið sólarljós, innbyrgða mat með litlu D vítamíni svo eitthvað sé nefnt. 

Helstu einkenni D-vítamínskorts er þreyta, vöðvamattleysi, bein-og eða liðverkir.

D-vítamín
D-vítamín vísar til hóps fituleysanlegra secostera sem bera ábyrgð á því að auka upptöku kalsíums, járns, magnesíums, fosfats og sinks í þörmum. Styrkur 25-hýdroxý D-vítamíns í blóði (þar á meðal D2 og D3) er talinn besta vísbendingin um D-vítamín stöðu. D-vítamínskortur er nú viðurkenndur sem heimsfaraldur. Heilsufarsáhættan sem tengist D-vítamínskorti er mun alvarlegri en áður var talið. Skortur á vítamínum hefur verið tengdur ýmsum alvarlegum sjúkdómum: beinþynningu, beinkröm, mænusiggi, hjarta- og æðasjúkdómum, fylgikvillum á meðgöngu, sykursýki, þunglyndi, heilablóðfalli, sjálfsofnæmissjúkdómum, flensu, mismunandi krabbameinum, smitsjúkdómum, alzheimer, offitu og hærri dánartíðni o.fl.

Að greina D-vítamínmagn er nú talið „læknisfræðilega nauðsynlegt skimunarpróf“ og að viðhalda nægilega háu D-vítamíngildi er nauðsynlegt til að bæta beinheilsu, heilsu og vellíðan líkamans.

Meginregla prófsins
VITAMIN D TEST er ónæmispróf sem byggir á meginreglunni um samkeppnisbindingu. Við prófun flyst blandan upp á himnuna í litskiljun með háræðaverkun. Himnan er forhúðuð með 25 (OH) D mótefnavaka á prófunarlínusvæði strimilsins.

D Vitamin
Tengdar vörur
Deila