Hvað er neyðargetnaðarvarnarpilla?

Teikningar 1920X1080 04 (1)
Þorsteinn Hjörtur Bjarnason
Þorsteinn Hjörtur Bjarnason Lyfjafræðingur
29. janúar 2026

Neyðargetnaðarvarnarpillan er stök tafla sem inniheldur hormónið levonorgestrel. Hún virkar þannig að hún seinkar eða hamlar egglosi og kemur þannig í veg fyrir að egg geti frjóvgast. Hún getur ekki rofið þungun sem þegar er hafin og hefur engin áhrif á frjósemi til lengri tíma. Hún verndar heldur ekki gegn kynsjúkdómum – þar eru smokkar eina vörnin. Pillan er hugsuð til notkunar eftir óvarðar samfarir, eða ef getnaðarvörn bregst, til dæmis ef smokkur rifnar.

Mikilvægt er að hafa í huga að hún verndar aðeins fyrir þessum eina atburði, ekki samförum sem eiga sér stað eftir inntöku.

Þetta er því neyðaraðgerð, ekki regluleg getnaðarvörn

Best er að taka pilluna eins fljótt og hægt er, helst innan 12 klukkustunda en ekki seinna en 72 klukkustundum frá samförum.

Því fyrr sem hún er tekin, því meiri líkur eru á virkni. Ef þú kastar upp innan þriggja klukkustunda frá inntöku þarftu að taka aðra töflu.

Lyfið dregur verulega úr líkum á þungun, en virknin getur verið minni hjá þeim sem eru með hærri líkamsþyngd, en samt er alltaf betra að taka hana en að gera ekkert.
Algengustu aukaverkanir eru ógleði, höfuðverkur, verkir neðarlega í kvið, þreyta og breytingar á blæðingum.

Þessi einkenni eru yfirleitt væg og ganga fljótt yfir. Gott er að lesa fylgiseðilinn, sérstaklega ef þetta er í fyrsta sinn sem þú tekur pilluna. Eftir inntöku er ráðlagt að halda áfram eða byrja strax á getnaðarvarnarpillu og nota smokk næstu sjö daga.

Einnig er gott að taka þungunarpróf eftir um þrjár vikur, sérstaklega ef blæðingar seinka

Að lokum er vert að nefna að sum lyf, til dæmis flogaveikilyf, geta haft áhrif á virkni neyðargetnaðarvarnarpillunnar. Sama á við ef frásog úr meltingarvegi er skert vegna niðurgangs, uppkasta eða sjúkdóms, t.d. Crohns sjúkdómsins

Láttu lyfjafræðing vita af öllum lyfjum sem þú tekur.
Ef þú ert í vafa eða þarft nánari ráðgjöf, þá er alltaf vel tekið á móti þér í næsta apóteki Lyfju.

Steini Mynd
Deila