Nokkur mikilvæg atriði um sýklalyf

Myndir Lyfja.Is Syklalyf
Árni Freyr
Árni Freyr Lyfjafræðingur
29. janúar 2026

Sýklalyf er ekki það sama og sýklalyf, heldur er það regnhlífarheiti yfir nokkra undirflokka lyfja sem virka gegn bakteríusýkingum. Meðal algengra tegunda má nefna penicillin á borð við Amoxicillin og Dicloxacillin og tetracýklínsambönd eins og Doxycyclin og Lymecyclin. 

Þótt öll sýklalyf virki gegn bakteríum er ekki þar með sagt að þau deili alfarið sömu eiginleikum. Þó eiga þau það öll sameiginlegt að það er afar mikilvægt að þau séu notuð rétt, og eingöngu þegar brýn þörf er á. Nefnum nokkur dæmi um hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar sýklalyf eru notuð:

  • Almennt skal klára sýklalyfjakúra nema læknir hafi gefið fyrirmæli um annað.
    Það þýðir, að þó þér finnist þú hafa náð bata eftir nokkra daga þá er samt mikilvægt að klára allan kúrinn sem mælt var fyrir um. Það er vegna þess að sýking getur tekið sig upp aftur ef lyfjatöku er hætt of snemma.
  • Æskilegt er að skipta skammtinum jafnt yfir sólarhringinn, nema annað sé tekið fram. Fyrirmæli um skammta eru gefin á skammtamiða sem límdur er á lyfjapakkningu, og skal þeim fyrirmælum fylgt. 
  • Það getur skipt máli hvort sýklalyf er tekið með máltíð eða á milli mála. Upplýsingar um það hvort lyfjataka sé háð máltíðum má finna í fylgiseðli lyfsins, en einnig geta lyfjafræðingar Lyfju aðstoðað við að skera þar úr um. Við gerum það til dæmis með afhendingu ráðgjafarspjalds samhliða sýklalyfinu, en það innifelur góð ráð er varða notkun sýklalyfja - þar með talið hvort að þitt sýklalyf skal tekið með mat, milli mála eða hvort það er óháð hvoru tveggja.

Flest sýklalyf sem afgreidd eru úr apótekum eru í töflu-eða hylkjaformi, en einnig er algengt að sýklalyf sé gefið til barna eða annarra sem ekki geta gleypt töflur eða hylki í formi mixtúra. Ákveðin atriði ber að hafa í huga þegar sýklalyfjamixtúrur eru annars vegar:

  • Sýklalyfjamixtúrur á vanalega að geyma í kæli eftir blöndun, og er geymsluþol þeirra við kjöraðstæður yfirleitt 7-14 dagar. 
  • Mikilvægt er að hrista mixtúruglasið fyrir hverja notkun, til að tryggja góða blöndun og draga úr líkum á klumpum. Nota skal lyfjaglas eða sprautu til að mæla rétt magn mixtúru til gjafar hvert sinn.
  • Gott er að skola munn með vatni eða drekka vatn eftir notkun, til þess að fyrirbyggja sveppasýkingu í munni.

Aukaverkanir og góðgerlar

Algengasta aukaverkun sem hlýst af notkun sýklalyfja er niðurgangur og lausar hægðir. Það kemur til vegna þess að sýklalyf vinna ekki aðeins gegn bakteríum sem valda sýkingu, heldur einnig gegn nauðsynlegum bakteríum í meltingarvegi. Þessi aukaverkun getur verið óæskileg, ekki eingöngu vegna augljósra óþæginda heldur einnig vegna aukinnar hættu á að virkni annarra lyfja sem tekin eru samhliða gæti minnkað. Önnur algeng aukaverkun af völdum sýklalyfja er sveppasýking í leggöngum. 

Draga má úr hættunni á fyrrnefndum niðurgangi og sveppasýkingu með daglegri inntöku góðgerla, sem viðhaldið geta eðlilegri bakteríuflóru á meðan sýklalyfjainntöku stendur, og eins eftir að henni lýkur. Starfsfólk Lyfju veitir gjarnan ráðgjöf við val á góðgerlum við hæfi hvers og eins. Úrvalið er vítt og breitt, og ákveðna hluti þarf að hafa í huga þegar góðgerlar eru valdir:

  • Fyrir það fyrsta er það svo að flesta góðgerla á ekki að taka á nákvæmlega sama tíma og sýklalyfið, heldur er æskilegt að láta tvo tíma líða á milli inntöku góðgerla og sýklalyfs svo að sýklalyfið drepi ekki góðgerlana. 
  • Þó er til ein tegund Optibac góðgerla sem sérhönnuð fyrir þá sem eru á sýklalyfjakúr, en þá gerla má taka á sama tíma og einn skammtur af sýklalyfi er tekinn. Þetta getur einfaldað mjög inntökuna, einkum og sér í lagi þegar sýklalyfið er tekið oft á dag. 
  • Þá er mælt er með að halda áfram töku góðgerla í 1-2 vikur eftir að sýklalyfjakúr lýkur, en það getur hjálpað til við að endurheimta eðlilega þarmaflóru. Pakkningastærð sem valin er getur því skipt máli í því samhengi.
  • Því miður er það svo, að ekki allir þola allar tegundir sýklalyfja, heldur geta sumir haft ofnæmi fyrir ákveðnum sýklalyfjum. Algengustu einkenni sýklalyfjaofnæmis eru útbrot, kláði og erfiðleikar við öndun, og er mikilvægt að hafa tafalaust samband við lækni ef slík einkenni koma fram.

Ítarlegri upplýsingar um allt sem viðkemur sýklalyfjum og réttri notkun þeirra má finna í Lyfjabókinni á heimasíðu okkar, Lyfja.is. Eins veita lyfjafræðingar okkar um land allt glaðir ráðgjöf ef einhverjar spurningar vakna.

Arni1920x1080
Deila