Þvagsýrugigt

Teikningar 1920X1080 34
Gigtarfélag Íslands
Gigtarfélag Íslands Félagasamtök
16. júní 2025
Tengt efni
Sjúkdómar og kvillar

Hvað er þvagsýrugigt?
Þvagsýrugigt er gigtarsjúkdómur sem orsakast af því að þvagsýrukristallar falla út í liði og valda þar bólgu, og þá oftast í einum lið í einu. Þvagsýra myndast við niðurbrot á RNA og DNA kjarnasýrum í líkamanum og hjá heilbrigðum einstaklingum losar líkaminn sig við niðurbrotsefni þvagsýru með þvagi. Hjá þeim einstaklingum sem hafa þvagsýrugigt þá safnast þvagsýra fyrir í blóðinu og verði uppsöfnun þar of mikil þá geta þvagsýrukristallar fallið út í liði.

Hverjir fá þvagsýrugigt?
Þvagsýrugigt getur átt sér margar orsakir. Þvagsýra er lífrænt efnasamband, sem myndast í líkamanum við niðurbrot púrins, sem er í flokki niturbasa t.d. Adenins og Guanins sem er meginuppistaða erfðaefnisins DNA og RNA og eru í öllum frumum. Púrín er því í miklu magni í kjötmeti, þar sem það samanstendur af mörgum frumum. Segja má, að þvagsýrugigt sé efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af því að of mikið magn þvagsýru safnast fyrir í líkamanum. Tilhneigingin til að framleiða of mikið eða útskilja of lítið af þvagsýru er arfgeng. Að auki geta umhverfisþættir eins og ofát og ofdrykkja aukið magn þvagsýru í líkamanum, og sama gegnir um viss lyf, t.d. þvagræsilyf sem notuð eru gegn hjartabilun og háum blóðþrýstingi. Þvagsýra getur myndað kristalla í liðamótum og næsta umhverfi þeirra, og einnig stundum í öðrum líkamshlutum, t.d. í brjóski á eyrunum og í húð sérstaklega á fingrum og tám.

Hver eru einkenni þvagsýrugigtar?

  • Skyndilegir og miklir verkir – Oftast í stórutá en geta komið í aðra liði (ökklalið, hné, úlnlið).
  • Bólga og roði – Liðurinn verður heitur, rauður og mjög aumur.
  • Minnkuð hreyfigeta – Sársauki og bólga gera hreyfingu erfiða.
  • Endurtekin köst – Einkennin koma í köstum sem geta varað í nokkra daga eða vikur.
  • Kristallaútfellingar – Í langvarandi tilfellum geta þvagsýrukristallar safnast saman í húð (tófusar)

Ef þú hefur þessi einkenni er gott að leita til læknis til greiningar og meðferðar.

Hvernig fer greining á þvagsýrugigt fram?
Auðvelt er að mæla þvagsýru í líkamanum með blóðprufu, og á sama hátt má meta árangur meðferðar við þvagsýrugigt. Með blóðprufum má einnig sýna, að vissir heilbrigðir einstaklingar, einkum nánir ættingjar þvagsýrugigtarsjúklinga, ganga árum saman jafnvel ævilangt með ofurmagn þvagsýru í líkamanum án þess að vita af því og án þess að fá þvagsýrugigtarkast.

Hver er meðferð við þvagsýrugigt?

  • Lyf við bráðum köstum – Bólgueyðandi lyf (NSAIDs), colchicine eða sterar draga úr verk og bólgu.
  • Forvarnarlyf – Allópúrínól eða febúxóstat lækka þvagsýru í blóði til að koma í veg fyrir endurtekin köst.
  • Breytt mataræði – Draga úr neyslu á purínríkum mat (t.d. rauðu kjöti, skelfiski) og áfengi.
  • Aukin vatnsdrykkja – Hjálpar líkamanum að losa þvagsýru og minnkar hættu á nýrnasteinum.
  • Líkamsþyngdarstjórnun – Að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd getur minnkað tíðni kasta.

Ef þú hefur þvagsýrugigt er mikilvægt að fylgja meðferðaráætlun og ráðfæra sig við lækni.

Til lengri tíma – hvernig á að koma í veg fyrir köst?

  • Taka forvarnarlyf – Lyf eins og allópúrínól eða febúxóstat lækka þvagsýru í blóði.
  • Halda heilbrigðu mataræði – Draga úr neyslu á purínríkum mat (t.d. rauðu kjöti, skelfiski) og sykruðum drykkjum.
  • Drekka nægt vatn – Hjálpar líkamanum að losa þvagsýru og minnkar hættu á nýrnasteinum.
  • Forðast áfengi, sérstaklega bjór – Getur aukið magn þvagsýru í blóði.

Halda jafnvægi á líkamsþyngd – Offita getur aukið hættu á köstum.

Regluleg lyfjanotkun og heilbrigður lífsstíll eru lykilatriði í forvörnum gegn köstum.

Um Gigtarfélag Íslands

Gigtarfélag Íslands eru félagasamtök sem starfa í þágu gigtarsjúklinga og aðstandenda þeirra.

Með því að gerast félagi í Gigtarfélagi Íslands færð þú aðgang að fjölbreyttri þjónustu; líkamsrækt og þjálfun, félagsstarfi og fróðleik. Vefsíða samtakanna er www.gigt.is. Síminn er 530 3600 og netfang: gigt@gigt.is

Deila