
Arna Skúladóttir veitti foreldrum barna á fyrsta aldursárinu góð ráð.
Arna er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í barnahjúkrun með svefnvandamál sem undirsérgrein. Hún starfar á Barnaspítala Hringsins og hefur tekið á móti þúsundum barna og foreldra sem leitað hafa til hennar með margvísleg svefnvandamál og fyrirspurnir. Árið 2006 sendi hún frá sér bókina Draumaland, svefn og svefnvenjur barna frá fæðingu til tveggja ára og hefur sú bók átt miklum vinsældum að fagna hér heima síðan, hún hefur einnig verið þýdd á fjölmörg tungumál.