Um Lyfju Heyrn

Heyrn

Lyfja Heyrn sérhæfir sig í að verja, mæla og bæta heyrn með framúrskarandi þjónustu heyrnarfræðings og sérþjálfaðs starfsfólks.

Lyfja Heyrn er fyrsta verslun sinnar tegundar á Íslandi þar sem viðskiptavinir geta komið inn, skoðað heyrnartæki, stuðningsvörur heyrnartækja og fyrirbyggjandi lausnir fyrir heyrn með aðgengi að sérfræðiráðgjöf.

Markmið Lyfju Heyrn er að breyta upplifun, þjónustu og vegferð viðskiptavina sem glíma við heyrnarskerðingu ásamt því að veita lausnir og faglega ráðgjöf á vörum sem vernda heyrn.

Lyfja Heyrn sérhæfir sig í að verja, mæla og bæta heyrn með framúrskarandi þjónustu heyrnarfræðings og sérþjálfaðs starfsfólks.

Við viljum þjónusta sérstaklega þá hópa sem þurfa á heyrnarvernd að halda í starfi og leik. Við bjóðum upp á algjörlega sérsniðnar heyrnarvarnir. Með því að skanna eyrað fáum við upp stafrænt mót af eyranu og sérsmíðum eftir því sérsniðna eyrnartappa.

Við leggjum mikið upp úr upplifun og að auka lífsgæði með bættri heyrn. Við viljum veita einstaklingum með heyrnarskerðingu ráðgjöf, stuðning og þjónustu en einnig aðstandendum þeirra og því er vegferð viðskiptavina okkar hönnuð með aðstandendur heyrnarskertra í huga.

Hjá Lyfju Heyrn færð þú:

  • Ítarlega heyrnarmælingu og getur skoðað vöruval heyrnatækja í sérhönnuðu heyrnarstúdíói
  • Fljótlega forskimun
  • Ráðgjöf um heyrnartæki, fyrirbyggjandi vörur og lausnir.
  • Heyrnartæki til prufu í kjölfar heyrnarmælingar

Við bjóðum hágæða heyrnartæki frá Phonak sem eru með þeim bestu á markaðnum. Lyfja Heyrn sérhæfir sig einnig í sérhönnuðum vörum fyrir heyrnarvernd sem hentar vel td við vinnu eða í frístundum.

BÓKA TÍMA

Forskimun hjá Hjúkrunarþjónustu Lyfju í Lágmúla

Samhliða þessu mun Lyfja bjóða upp á nýja þjónustu hjá hjúkrunarfræðingum í verslunum Lyfju í Lágmúla 5, en þangað getur þú mætt í heyrnarforskimun án tímabókunar sem gefur til kynna hvort heyrnarskerðing geti verið til staðar. Skimunin tekur 10-15 mínútur.

Áhugaverðar staðreyndir

  • Samkvæmt John Hopkins Medicine upplifa 1 af hverjum 3 fullorðnum eldri en 65 ára heyrnarskerðingu
  • Þeir sem þurfa á heyrnartækjum að halda fá þau að jafnaði 6 árum of seint > erfiðari endurhæfing
  • Sífellt yngra fólk glímir við heyrnarskerðingu, vegna breytinga á hlustun, samkvæmt rannsókn NIDCD í USA er hlutfallið 14% á aldrinum 20-69 ára

Ef grunur leikur á skertri heyrn hjá barni á aldrinum 0-18 ára er best að leita til Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, sérfræðinga í háls-, nef- og eyrnalækningum eða heimilislæknis.