Jurtalyfið Sefitude frá Florealis er eina lyfið á Íslandi við svefntruflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils í apótekum. Lyfið inniheldur útdrátt úr garðabrúðurót (Valeriana) en róandi áhrif jurtarinnar hafa lengi verið viðurkennd og staðfest í klínískum samanburðarrannsóknum.
Jurtalyfið getur stytt tímann sem það tekur að sofna og bætt svefngæði. Sefitude er tekið inn að kvöldi og hjálpar viðkomandi að róast og sofna.